Síðustu leikir vetrarins í dag!

Nú fer handbolta vertíðin að ljúka. Í dag leika stelpurnar og strákarnir sinn síðasta leik í N1-deildinni.

Strákarnir fara í Kópavoginn og leika gegn HK og hefst leikurinn kl. 14:00. Við hvetjum fólk til að fjölmenna á þann leik enda eiga strákarnir það svo sannarlega skilið enda hafa þeir staðið sig með miklu meira en bara sóma í vetur.

Stelpurnar leika sinn síðasta leik í vetur á heimavelli gegn FH, en sá leikur hefst kl. 16:00 . Stelpurnar hafa sigrað síðustu fimm leiki í röð. Stelpurnar eru öruggar með 4.sætið í deildinni því Gróttu stelpur eru 3 stigum á eftir okkar stelpum. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að fjölmenna líka á þennan leik og kveðja Ásvelli í vetri með sigri á FH.

Allir á völlinn í dag – í síðasta skiptið í vetur …..

ÁFRAM HAUKAR!

    – Arnar Daði Arnarsson skrifar.