Lokaleikir Hauka í deildinni eru gífurlega mikilvægir. Haukar eiga fjóra leiki eftir í deildinni, tvo útileiki og tvo heimaleiki.
Næsti leikur Hauka er á laugardaginn 25. ágúst en þá fara Haukar í heimsókn á Grenivík og spila á Grenivíkurvelli gegn Magna. Magnamenn eru sem stendur í neðsta sæti deildarinnar með 8 stig. Þeir hafa fengið fimm af átta stigum sínum á heimavelli. Magni eru í harðri baráttu gegn ÍH og Sindra um að bjarga sér frá falli, en einungis eitt lið fellur í deildinni.
Fyrsta dag September mánaðar koma svo Sindra menn í heimsókn á gervigrasið okkar. Sindri er eins og Magni í harðri baráttu um að bjarga sér frá falli, en þeir eru með 10 stig. Fyrri leikur þessara liða endaði með jafntefli 1 1. Sindramenn sem rétt sluppu frá falli í fyrra með sigri í lokaleik, ætla sér auðvitað ekki að falla og reyna hvað sem þeir geta til að sleppa við fall. Þetta verður því hörkuleikur fyrir okkar menn.
Sunnudaginn 9.september fara okkar menn austur fyrir fjall og leika gegn Selfyssingum. Selfoss er nú sem stendur í 2.sæti með 29 stig, þremur stigum á eftir Haukum. Fyrri leikur þessara liða sem háður var á Ásvöllum endaði með jafntefli 1-1, en Selfyssingar jöfnuðu á 83.mínútu. Þetta verður gríðarlega erfiður leikur, því Selfyssingar ætla sér ekkert annað en að fara upp. Selfyssingar hafa einungis tapað einum leik á heimavelli og það var gegn Völsungi, 16.júní.
Síðasti leikurinn í deildinni er svo á heimavellinum okkar góða. En þá eigast við tvo efstu liðin í deildinni, Haukar og ÍR. Svo gæti farið að þetta verði hreinn úrslitaleikur um 1.sætið, en allt getur gerst í næstu fjórum umferðinum og staðan í deildinni mikið breyst þangað til. Fyrri leikur liðana endaði 1-1, en Davíð Ellertsson jafnaði úr vítaspyrnu eftir að heimamenn höfðu komist yfir.
Staðan á toppnum eftir 13 umferðir;
1. Haukar 32 stig
2. Selfoss 29 stig
3. ÍR 28 stig
4. KS/Leiftur 28 stig
5. UMFA 22 stig
Staðan í botnbáráttunni;
8. ÍH 10 stig
9. Sindri 10 stig
10. Magni 8 stig
Ég vil því hvetja fólk til að fjölmenna á leikina sem eftir er, þó aðalega kannski á heimaleikina, enda langt að sækja hina leikina.
& í lokin vil ég auglýsa nýja myspace síðu stuðningsliðs Hauka Haukasveitin
www.myspace.com/haukasveitin
ÁFRAM HAUKAR