Powerade-bikarinn hefst í kvöld

Í kvöld hefst körfuboltavertíðin þegar Powerade-bikarinn fer af stað.

Haukastelpur hefja leik á heimavelli en þær fá Val í heimsókn í kvöld og hefst leikurinn kl. 19:15.

Haukar hafa unnið þennan bikar tvisvar sinnum árin 2006 og 2007.

Aðrir leikir í átta liða úrslitum Powerade-bikarsins eru:

KR-Fjölnir
Keflavík-Snæfell
Grindavík-Hamar

Mynd: Landsliðskonan Kristrún Sigurjónsdóttir er lykilmaður í Haukaliðinunonni@karfan.is