Páll Ólafsson kom til okkar Haukamanna haustið 2001 þegar hann var aðstoðarþjálfari hjá Viggó Sigurðssyni en Viggó þjálfaði eins og við öll vitum meistaraflokk karla. Palli hafði verið þjálfari hjá HK árin áður en Palli hafði þar á undan verið aðstoðarþjálfari Sigurðar Gunnarsson þegar hann var þjálfari meistaraflokks karla hjá okkur Haukamönnum og meðal annars gerðu þeir félagar liðið að bikarmeisturum 1997.
Þegar Palli og Viggó tóku við liðinu haustið 2001 vorum miklar breytingar hjá félaginu. Félagið var að flytja frá Íþróttahúsinu við Strandgötu á Ásvelli. Meistaraflokkur karla hafði hampað Íslandsmeistaratitlinu í fyrsta skipti frá 1943, eða í 57 ár, en Guðmundur Karlsson þjálfaði liðið tímabilin á undan þeim félögum.
Sigurganga Hauka hélt áfram eftir að Viggó og Palli tóku við og meðan Viggó var þjálfari sigraði liðið Íslandsmeistaratitilinn 2001 og 2003, deildina öll árin og urðu bikarmeistarar 2001 og 2002. Samtals 7 titlar á þessum þremur árum og ekki annað hægt að segja en það hafi verið góður árangur.
Viggó hætti störfum í byrjun ársins 2004 og tók þá Palli við liðinu. Undir hans stjórn sigruðu Haukar deildina tvö næstu ár, höfnuðu í öðru sæti í bikarkeppninni í fyrra, og urðu Íslandsmeistarar 2004 og 2005 auk þess sem þeir sigruðu deildarbikarinn fyrstir allra í fyrra. Í fyrra hafnaði liðið í 2. sæti í Íslandsmótinu. Í ár hefur gengi liðsins ekki verið nógu gott, liðið komst að vísu í undanúrslit í SS bikarnum og datt þar út gegn bikarmeisturunum og hafnaði í 6. sæti í deildinni eftir mikið basl í fallbaráttunni.
Á þeim árum sem Palli hefur verið hjá okkur hafa Haukar unnið samtals 12 titla auk bikarmeistaratitilsins árið 1997 þegar Sigurður og Palli voru með liðið.
Páll mun nú færa sig um set hjá félaginu og mun gegna ráðgjafastörfum hjá félaginu. Aron Kristjánsson, Haukamaður, tekur við meistaraflokks karla liðinu fyrir næsta tímabil.
Handknattleiksdeild Hauka þakkar Palla okkar kærlega fyrir vel unnin störf á síðustu árum með meistaraflokk karla og vonum að við fáum að njóta krafta hans lengi áfram.