Opin æfing með Helenu og Micah

Helena verður á Ásvöllum næsta miðvikudagÁ miðvikudaginn (19. maí) ætla Helena og Micah að vera með opna æfingu fyrir okkar krakka hér í Haukum, æfingarnar verða á Ásvöllum.

Fyrir krakka 7-11 ára er æfing kl. 16:00-17:00 (B-salur)
Fyrir 12-18 ára er æfing kl. 17:00-18:00 (B-salur)

Helena Sverrisdóttir hefur verið að spila með TCU, Texas Christian University, undanfarin 3 ár við frábæran orðstýr. Helena var valin besti leikmaður Mountain West deildarinnar í vetur, einnig komst hún á lista yfir 40 bestu körfuknattleikskonur landsins í svokallað All America Honorable Mention. Við erum stolt af því að Helena er alin upp í Haukum af mikilli Haukafjölskyldu og erum mjög ánægð að fá hana hingað til að miðla af sinni reynslu. Með henni á miðvikudaginn verður Micah Garoutte sem hefur spilað með henni í TCU undanfarin 3 ár.

Ekki láta þetta tækifæri framhjá þér fara.