Það var hörkuleikur á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og Grótta mættust í N1-deild karla. Fjölmargir Haukarar voru að heimsækja sinn gamla heimavöll í Gróttubúningnum og Geir Sveinsson að stýra sínum fyrsta leik sem þjálfari Gróttu eftir að Halldór Ingólfsson hafi verið rekinn úr starfi hjá Gróttu.
Haukar voru fyrir leikinn í harðri baráttu á toppnum og þurftu nauðsynlega að sýna hvað í þeim býr eftir slakan leik gegn FH í síðustu umferð. Grótta að sama skapi í bullandi fall baráttu og þurfti jafn mikið ef ekki meira sigur að halda. Umfjöllun um leikinn er hægt að lesa með því að ýta á „lesa meira“.
Elías Már skoraði fyrsta mark leiksins eftir hraðarupphlaup en Gróttumenn jöfnuðu í næstu sókn. Haukar skoruðu síðan næstu tvo og komust í 3-1 með tveimur mörkum frá Sigurbergi Sveinssyni.
Haukamenn nýttu hraðarupphlaupin mjög vel í byrjun leiks og skoruðu hvert markið á fætur öðru úr hraðarupphlaupum með Elías Má og Frey Brynjarsson í broddi fylkinga. Með tímanum juku Haukar forskotið enn meira og þegar rúmar 20 mínútur voru liðnar af leiknum voru Haukar komnir með sjö marka forskot, 12-5.
Síðustu tíu mínúturnar í fyrri hálfleik bitu Gróttumenn frá sér minnkuðu muninn fyrir hlé. Staðan í hálfleik 13-8 Haukum í vil. Í fyrri hálfleik var Sigurbergur Sveinsson markahæstur Haukmanna með fjögur mörk. Þeir Freyr og Elías Már voru svo með þrjú mörk hvor og öll úr hraðarupphlaupum í byrjun leiks.
Fyrstu tvö mörk seinni hálfleiksins komu frá gestunum og var Einar Örn einnig rekinn útaf. En það kom ekki að sök og Björgvin Hólmgeirsson skoraði í næstu sókn og staðan 14-10. Áfram héldu Gróttumenn að minnka muninn og Viggó Kristjánsson skoraði tvö mörk í röð fyrir Gróttu og Ægir Hrafn það næsta og staðan skyndilega orðin 14-13 en þá tók Aron Kristjánsson leikhlé. Á einungis níu mínútum höfðu Gróttumenn minnkað muninn í eitt mark og Jón Karl Björnsson gerði gott betur og jafnaði úr hraðarupphlaupi.Þetta tók loks enda og skoraði Sigurbergur loks mark fyrir Hauka á 12 mínútum seinni hálfleiks og jafnaði metin í 15-15. Einungis annað mark Hauka á 12 mínútum.
Grótta náði síðan tveggja marka forskoti og héldu því þangað til að Sigurbergur Sveinsson tók sig til og skoraði tvö mörk í röð og jafnaði metin í 18-18.Sigurbergur gerði sitt þriðja mark í röð þegar hann jafnaði metin í 19-19 og Freyr Brynjarsson kom Haukum síðan loksins yfir í næstu sókn 20-19. Haukar komust svo í 21-19 en þá tók nýráðinn þjálfari Gróttu, Geir Sveinsson leikhlé og það skilaði sínu því næstu þrjú mörk voru Gróttumanna og breyttu þeir stöðunni í 22-21 sér í vil. Spennan var í algleimingi þegar ein og hálf mínúta var eftir að leiknum og Grótta einu marki yfir og með boltann. Birkir Ívar gerði sér lítið fyrir og varði frá Haukamanninum, Jóni Karli. Elías Már fær boltann í hraðarupphlaupi og jafnar metin. Grótta fer í sókn og fá vítakast þegar 25 sekúndur eru eftir af leiknum en hvað gerir Birkir Ívar best? Jú, að verja á ögurstundu og það breyttist ekkert í kvöld, Birkir varði frá Atla Rúnari. Haukar fá því eina sókn í viðbót og ekki í fyrsta sinn í vetur skorar Björgvin Hólmgeirsson sigurmarkið á síðustu sekúndum leiksins og eins marks sigur Hauka því staðreynd 24-23. Tæpara mátti það ekki standa.
Markahæstur í liði Hauka var Sigurbergur Sveinsson með 8 mörk. Björgvin Hólmgeirsson, Elías Már og Freyr voru með fjögur mörk hver. Þeir Pétur Pálsson og Einar Örn Jónsson voru síðan með tvö mörk hvor.
Birkir Ívar varði síðan 18 skot í markinu.