N1-deild kvenna hefst á morgun

Á morgun, hefst N1-deild kvenna með heilli umferð. Í ár munu 8 lið leika í efstu deildinni, einu færra en í fyrra, því lið Akureyrar mun ekki senda lið til keppni í efstu deild eins og síðustu ár.

Haukar mæta Stjörnunni á Ásvöllum á morgun, klukkan 14:00, en eins og greint hefur verið á síðunni áður, mun strax að leik loknum sömu lið leika á sama vellinum en þá í karlaflokki. Þetta verður verðugt verkefni fyrir meistaraflokk kvenna, enda Stjarnan ríkjandi Íslands -og Bikarmeistari. Einnig sigruðu þær lið Fylkis í leik meistara meistaranna um síðustu helgi.

Haukastelpurnar gerðu reyndar gott mót fyrr í mánuðinum, því þær sigruðu Reykjavík Open, nokkuð örugglega. 

Nokkrar breytingar hafa verið á Haukaliðinu frá því í fyrra. Harpa Melsteð, Hind Hannesdóttir, Inga Fríða Tryggvadóttir og Ausra Geciene hafa allar hætt og þá hefur markvörðurinn Laima Miliauskaite yfirgefið félagið.

En Haukar hafa í þeirra stað fengið nokkra leikmenn. Heiða Ingólfsdóttir ungur og efnilegur markvörður frá ÍBV kom til liðsins, Ester Óskarsdóttir sem er einnig uppalin frá Eyjum kom til liðsins frá Akureyri. Nína Arnfinnsdóttir gekk síðan til liðs við félagið eftir að hafa leikið í erlendis svo kom Tatjana Zukovska en hún hefur leikið hér á landi í fjölmörg ár, þó hún hafi ekki spilað á síðasta ári.

Hinir leikirnir í umferðinni eru, HK – Fram, Fylkir – Valur og Grótta – FH.