N1-deild karla hefst í kvöld

Í kvöld hefst N1-deild karla í handknattleik. Haukar eru ríkjandi Íslandsmeistarar og er orðinn mikil tilhlökkun hjá handboltaáhugafólki sem og leikmönnum enda kveikti gengi íslenska landsliðsins í landanum með frábærum árangri á Ólympíuleikunum í Peking í sumar.

Þó að deildin hefjist í kvöld spila Haukar ekki sinn fyrsta leik fyrr en á laugaradaginn næsta.

Deildin hefst í kvöld með tveimur leikjum. Fyrst bera að nefna leik Víkings og Vals, en Víkingar eru nýliðar í 1.deildinni en Valsarar ríkjandi Bikarmeistarar. Seinni leikurinn er svo leikur Akureyrar og FH sem eru líkt og Víkingar, nýliðar í deildinni. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:30.

Fyrsta umferðin lýkur svo á laugardaginn með tveimur leikjum. Framarar heimsækja HK í Kópavoginn og svo mæta Haukar, Stjörnunni á Ásvöllum. Báðir leikirnir á laugardaginn hefjast klukkan 16:00.

Það verður sannkallaður Stjörnudagur á Ásvöllum á laugardaginn, því klukkan 14:00 mætir meistaraflokur kvenna einnig liði Stjörnunnar í fyrstu umferð N1-deildar kvenna. Svo má ekki gleyma því að á sama tíma og karlarnir leika gegn Stjörnunni verður einnig leikinn leikur úti á gervigrasi, en þá mætir meistaraflokkur Hauka liði Stjörnunnar í síðustu umferð 1.deildar í knattspyrnu.

Það verður því nóg að gera á laugardaginn og hvetjum við alla til að fjölmenna á leikina.