Meiri breytingar

Meiri breytingar hafa orðið á meistaraflokkunum en greint var frá í gær.

Hinn síungi Halldór Ingólfsson er snúinn heim og mun leika með Haukastrákunum í vetur. Við þekkjum öll Halldór en hann hefur leikið mörg tímabil með okkur Haukamönnum. Dóri fór til Noregs í fyrra og þjálfaði lið Stavanger Handball en hefur ákveðið að koma heim.

Annar síungur leikmaður en kvenmaður hefur ákveðið að taka fram skóna aftur. Það er Inga Fríða Tryggvadóttir sem hefur ákveðið að snúa aftur á völlinn og leika með stelpunum. Þetta eru gleðifréttir fyrir okkur Haukamenn þar sem Inga Fríða gerir ekkert annað en að styrkja hópinn okkar.

Harpa Melsteð, enn einn síungur leikmaður, hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna. Hún mun vera spilandi aðstoðarþjálfari.