Haukar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir seinni umferð Pepsi deildar karla. Magnús Björgvinsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka en hann kemur frá Stjörnunni.
Magnús hefur ágætis reynslu í Pepsi deildinni en hann spilaði 14 leiki með Stjörnunni í fyrra og skoraði 3 mörk.
Haukar sitja á botni Pepsi deildar karla með 6 stig en eru þó aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni
Magnús getur spilað bæði sem framherji og kantmaður en hann býr yfir gríðarlegum hraða og er líklega einn sprettharðasti leikmaður deildarinnar. Magnús er því góð viðbót við leikmannahóp Hauka.
Þá vilja Haukar semja við Jamie Mcunnie sem hefur verið að æfa með liðinu og eru Haukar í samningaviðræðum við hann. Hins vegar verður ekki samið við þá David Kiseljak og Aleksander Kuxmanovski. Fleiri tíðindi af liðinu eru þau að Garðar Ingvar Geirsson er byrjaður að æfa aftur eftir að hafa fótbrotnað á æfingu rétt fyrir fyrsta leik í deildinni og vonandi að hann nái að koma sér á skrið í seinni umferð Pepsi deildarinnar.