Lokahóf knattspyrnudeildarinnar fór fram í kvöld

Það var mikill fjöldi Haukamanna sem var samankomin í veislusal Hauka að Ásvöllum í kvöld þegar knattspyrnudeildin lauk formlega knattspyrnusumrinu.

Eins og flestir vita féllu bæði lið Hauka úr Pepsi-deildinni og munu því spila í þeirri 1. á næsta ári. Það var ekki að sjá á stemningunni hjá fólkinu, en það var góð stemning á lokahófinu eins og fyrri daginn.

Fleiri orð verða nú ekki skrifuð um lokahófið sjálft en að sjálfsögðu voru veitt verðlaun fyrir þá leikmenn sem talið er að hafa skarað framúr og var naumt á nokkrum stöðum.

Hjá kvennaliðinu var Sonja Björk Guðmundsdóttir, 15 ára leikmaður liðsins, valin efnilegasti leikmaður Hauka en hún lék sínu fyrstu meistaraflokksleiki í ár og spilaði hvorki fleiri né færri 12 leiki í sumar fyrir meistaraflokk og þá flesta sem byrjunarliðsmaður.

Besti leikmaður liðsins var síðan valin Jóna Sigríður Jónsdóttir, hún lék als 20 leiki fyrir Hauka í sumar, og stjórnaði hún vörninni af stakri prýði. Þessi tvenn verðlaun velja leikmenn sjálfir.

Hjá strákunum var unglambið, Ásgeir Þór Ingólfsson valinn efnilegasti leikmaður Hauka en eftir erfið meiðsli fyrir tímabilið stimplaði hann sig rækilega inn í liðið þegar leið á sumarið og var stór partur í góðu gengi Hauka seinni hluta tímabilsins. Hann spilaði 17 leiki fyrir Hauka í sumar.

Besti leikmaður liðsins var síðan skallapopparinn, Arnar Gunnlaugsson sem sló heldur betur í gegn í sumar og var til að mynda talað um að hann ætti skilið sæti í landsliðinu og yrði þar af leiðandi fyrsti leikmaður Hauka til að spila A-landsliðsleik. Það er enn von, við setjum pressu á Ólaf Jóhannesson, Haukara og landsliðsþjálfara að velja hann í liðið. Hann lék 18 leiki og skoraði í þeim 8 mörk.

Knattspyrnumaður Hauka sem valið er af stjórn knattspyrnudeildar var síðan valinn, Guðjón Pétur Lýðsson en hann heillaði fleiri en bara okkur Haukamenn í sumar og var á köflum frábær í sumar. Guðjón fékk í kvöld farandsbikar sem var í höndum, Hilmars Trausta Arnarssonar sem og eignabikar.

 

Við munum birta viðtal við knattspyrnumann Hauka árið 2010 hér á síðunni á næstu dögum.

Við óskum þessum leikmönnum til hamingju með viðurkenningarnar og þökkum kærlega fyrir lærdómsríkt sumar.