Leikir um helgina

Báðir Meistaraflokkar Hauka eru að spila í dag. Karlanir spila á Ávöllum kl. 16:00 við KS/Leiftur í 2. deildinni en konunar spila í Mosfellsbæ við Aftureldingu kl. 16:30. 2. flokkur karla spilar svo á Akureyri í Boganum kl. 14:00 við KA en á morgun spila þeir við Þór í Boganum kl. 12:00.

Ég hvet sem flesta til þess að kíkja á þessa leiki og hvetja Hauka til sigurs. Áfram Haukar!!!

Leikir um helgina

Fjörið byrjar á morgun, föstudag þegar strákarnir okkar taka á móti ÍR kl. 20:00 á Ásvöllum. Á sunnudaginn fara strákarnir norður yfir heiðar og spila við KA kl. 17:00 í KA-heimilinu. Á sama tíma en öðrum stað eiga stelpurnar okkar leik, en kl. 17:00 spila þær við Víking á Ásvöllum.

Fjölmennum og styðjum liðin okkar – Áfram Haukar