Kynning á handboltaakademíu

Á þingi ÍBH 28. apríl síðastliðinn skrifuðu Haukar og Flensborg undir yfirlýsingu um afrekssvið við skólann í handknattleik, körfuknattleik og knattspyrnu.
 
Flensborgarskóli byrjaði síðastliðið skólaár á sambærilegu verkefni í samvinnu við körfuknattleiksdeild Hauka og handknattleiksdeild FH og er reynsla þeirra af þessu verkefni með slíkum ágætum að skólinn hafa boðið fleiri félögum og deildum að taka þátt. Handknattleiksdeild Hauka sýndi þessu málefni strax áhuga á haustmánuðum 2006 og var vel tekið í þá málaleitan okkar af forráðamönnum Flensborgarskólans að handknattleiksdeild Hauka yrði þátttakandi í þessu verkefni, sem nú er orðið að veruleika.
 
Hér er um að ræða einstakt tækifæri fyrir iðkendur í handbolta hjá Haukum, sem eru að hefja nám í framhaldsskóla, til að auka færni í greininni í samvinnu skóla og Hauka og fá það metið sem hluta af námsefni til stúdentsprófs. 
Handknattleiksdeild Hauka heldur kynningarfund á þessum hluta námsins þann 15. maí kl. 20:00. Vinsamlegast nýtið ykkur þetta tækifæri til að kynna ykkur þennan möguleika.
 
Með framsögu á fundinum verða:
  • Magnús Þorkelsson, aðstoðarskólastjóri Flensborgarskóla
  • Pétur Vilberg Guðnason, formaður unglingaráðs handknattleiksdeildar Hauka.
 Einnig munu sitja fyrir svörum:
  • Óskar Ármansson íþróttafræðingur, aðstoðarþjálfari mfl. karla og þjálfari 2. flokks.
  • Díana Guðjónsdóttir íþróttafræðingur, íþróttakennari í Flensborg, annar þjálfari mfl. kvenna og þjálfari unglingaflokks kvenna. 
  • Gísli Guðmundsson, íþróttafræðingur, markmannsþjálfari. 
 Þau munu öll koma að kennslunni frá handknattleiksdeild Hauka, ásamt Aroni Kristjánssyni, kennara og þjálfara mfl. ka í Haukum.