Haukar mættu KR í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í gær á Ásvöllum og höfðu ekki erindi sem erfiði. Leikurinn var jafn til leiks loka og var mikið batamerki á liðinu frá því í fyrsta leiknum sem þær töpuðu með 31 stigi. Leikurinn í gær endaði með fjögra stiga sigri KR 75-79 og leiða þær því einvígið 2-0 og vantar aðeins einn leik til að komast í úrslit.
KR byrjaði mun betur en Haukaliðið en frábær annar leikhluti hjá Haukaliðinu kom þeim yfir rétt áður en að fyrri hálfleikur kláraðist. KR leiddi hins vegar í hálfleik með þremur stigum.
Seinni hálfleikur var jafn fram á loka mínútur leiksins og því miður fyrir Haukaliðið þá vantaði herslu muninn til að sigla fram úr KR og sigra leikinn.
Heather Ezell var stigahæst Hauka með 31 stig og Kiki Lund gerði 16.