Vegna eftirspurnar hefur verið ákveðið að bjóða áfram upp á knattspyrnunámskeið hjá Íþróttaskóla Hauka vikurnar 21.-25. júlí og 28. júlí- 1. ágúst. Námskeiðgjöld fyrir vikuna er 3000 kr. fyrir þá sem hafa greitt æfingagjöld, 3500 kr. fyrir aðra. Umsjónaraðilar námskeiðsins eru leikmenn meistaraflokks karla hjá Haukum sem starfa við Íþróttaskólann. Námskeiðið er frá 9-12 á daginn. Skráning fer fram á staðnum og einnig er hægt að greiða þar eða fá upplýsingar í Vallarhúsinu um hvernig má millifæra námskeiðsgjöldin.
Allar almennar upplýsingar um Íþróttaskólann á www.haukar.is undir Skráning á Íþróttanámskeið.