Meistaraflokkur karla í fótbolta mætir Keflvíkingum í Lengjubikarnum á morgun, laugardag, kl. 12:00 í Reykjaneshöllinni. Haukur biðu lægri hlut um síðustu helgi gegn Grindavík, 2 – 3, þar sem Björgvin Stefánsson og Zlatko Krickic skoruðu mörk Hauka.
Við hvetjum Hauka-fólk að mæta í Reykjaneshöllina og fylgjast með ungu og efnilegu Hauka-liði undirbúa sig fyrir átökin í 1. deildinni í sumar.