Kaflaskipt í firðinum

Meistaraflokkur karla spilaði sinn 3. leik í 2. deildinni sumarið 2007 sá leikur var á móti KS/Leiftri. Fyrir leikinn voru Haukar í efsta sæti með fullt hús stiga eða 6 stig en KS/Leiftur voru í 8. sæti með 1 stig.

Byrjunarlið Hauka var þannig að Amir var í markinu. Þórhallur Dan(fyrirliði), Óli Jón, Davíð E og Davíð J voru í vörninni. Á miðjunni voru Úlfar, Kristján Ómar, Goran og Hilmar Geir, fyrir framn þá var Árni og fremstur var Hilmar Emils.

Leikurinn byrjaði með því að Haukar sóttu meira og strax á 2. mínútu fengu Haukar aukaspyrnu rétt við vítateigslínuna og það var Goran sem tók hana en boltinn fór beint á markið og Þorvald Þorsteinsson markmann KS. Hilmar Emils skoraði mark á 16. mínútu en það var dæmt af vegna rangstöðu.

Haukar náðu góðu spili á 30. mínútu sem endaði með góðum þríhyrning hjá Hilmari Emils og Árna og var sá fyrrnefndi kominn í gegn og kom Haukum yfir. Mínútu síðar koms Árni einn inn í gegn en skot hans fór framhjá. KS/Leiftur náði að jafna eftir að Sigmundur Jónsson skaut í Þórhall Dan og í netið óverjandi fyrir Amir í marki Hauka. Mínútu fyrir hálfleik átti Kristján Ómar góða fyrirgjöf beint á kollinn á Hilmari Emils en skallinn frá honum fór framhjá.

Fyrsta færi seinni hálfleiks átti Goran þá átti hann skot beint á mark KS/Leifturs. Haukar gerðu breytingu á liði sínu á 55. mínútu þegar Árni fór útaf og Ómar Karl inn. Úlfar átti gott skot framhjá á 58. mínútu þegar Haukar spiluðu vel saman og boltinn endaði hjá Úlfari.

Á 75. mínútu skiptu Haukar um leikmann en Hilmar Geir fór útaf og inn á kom YaredYedeneskachew en hann er Bandaríkjamaður sem var að spila sinn 1. deildarleik fyrir Hauka. Önnur skipting var gerð nokkrum mínútum inn á en þá fór Úlfar útaf en Ómar “Bangsi” Rafnsson inn á.

Í uppbótartíma áttu Haukar besta færi seinni hálfleiks en þá átti Hilmar Emils góðan sprett upp miðjuna og gaf síðan góða sendingu innfyrir á Ómar Karl varamann en Þorsteinn í marki gestana gerði vel með því að koma út á móti Ómari og verja vel. Svo fjaraði leikurinn út og liðin skildu jöfn 1 -1.

Þessi leikur var mjög erfiður fyrir Hauka menn þar sem KS/Leiftur lágu hreinlega í vörn allan leikinn og erfitt var því að brjóta niður varnarmúr gestana. Bestir í leiknum voru Hilmar Emils sem var mjög ógnandi í fremstu víglínu og Kristján Ómar sem stjórnaði miðjunni að stakri prýði.

Næsti leikur Hauka er á föstudaginn kemur á móti Skallagrími í Bikarnum en sá leikur fer fram í Borganessi kl. 20:00 en næsti leikur í deildinni á móti Aftureldingu sem er í efsta sæti deildarinnar ásamt Haukum. Leikurinn í Mosfellsbæ fimmtudaginn 7. júní kl. 20:00. Áfram Haukar!!!