Jamie Mcunnie til Hauka

Páll Guðmundsson f.h. meistaraflokksráðs og Jamie McunnieÍ hádeginu í dag skrifaði Jamie Mcunnie undir samning við Hauka og verður því gjaldgengur í næsta leik liðsins gegn KR næstkomandi sunnudag á Vodfonevellinum. Samningurinn við Jamie gildir út þetta tímabil.

Jamie sem er 27 ára Skoti, getur leikið bæði sem varnarmaður sem og sem aftari miðjumaður. Hann lék áður með Arnari Gunnlaugssyni í Dundee United í Skotlandi en hann á jafnramt 22 leiki með U-21 árs landsliði Skotlands og þar af 15 sem fyrirliði liðsins.

Hann lék síðast með East Fife í Skotlandi en hefur verið á reynslu hjá Haukum í um það bil viku og hefur staðið sig það vel að Andri Marteinsson vildi semja við leikmanninn.

Jamie er því annar leikmaðurinn sem kemur til Hauka á nokkrum dögum því áður hafði Magnús Björgvinsson fengið leikheimild með Haukum eftir að hafa æft með liðinu í allt sumar.

Andri var að vonur ánægður með að vera búinn að landa Jamie enda myndi hann klárlega auka breiddina á hópnum fyrir komandi baráttu sem býður Hauka. Hann talaði um það að Jamie gæti bæði spilað sem afturliggjandi miðjumaður og í vörninni og það væri þær stöður sem margir leikmenn Hauka hafa verið að kljást við meiðsli.

Aðspurður hvort fleiri leikmenn væru á leiðinni til Hauka í félagsskiptaglugganum tjáði hann því að það væri von á jafnvel einum til tveimur leikmönnum í viðbót en það væri þó allt á byrjunarstigi.

Myndin hér að neðan er af Páli Guðmundssyni í meistaraflokksráði karla og Jamie Mcunnie fyrir framan nýja og glæsilega stúku Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnusvæði Hauka er að taka á sig nýja mynd og eru frábærir og bjartir tímar framundan á Ásvöllum.

Að lokum minnum við á stórleik Hauka og KR næstkomandi sunnudag á Vodafonevellinum klukkan 19:15.