Jafntefli gegn Fram

Í kvöld léku stelpurnar okkar gegn Fram í N1 deildinni. Leikurinn var spennandi frá upphafi og skiptust liðin á að hafa forystu allan leikinn. Staðan í hálfleik var 11-11.

Í síðari hálfleik hélt spennan áfram og liðin héldu áfram að skiptast á að vera með forystu. Leikurinn var þó ekki mikið fyrir augað en samt sem áður spennandi. Lokatölur urðu svo 24-24.

Markahæst í liði Hauka var Ramune Pekarskyte með 7 mörk. Nína Kristín Björnsdóttir og Sandra Stojkovic skoruðu 5 mörk.
Markahæst í liði Fram voru Stella Sigurðardóttir og Ásta Birna Gunnarsdóttir með 5 mörk.

Í liði Hauka léku tvær stelpur sína fyrstu meistaraflokksleiki. Það voru þær Sandra Sif Sigurjónsdóttir, sem er á yngsta ári í unglingaflokki, og Karen Helga Sigurjónsdóttir, sem er á eldra ári í fjórða flokki. Við óskum stelpunum til hamingju með fyrsta meistaraflokksleikinn sinn.

Nú verður gert hlé á N1 deild kvenna en næsti leikur stelpnanna verður í Mýrinni þann 11. desember.