Jafntefli í fyrsta leik.

Byrjunarlið Hauka í leiknum í dag;

Atli (m)

Jónas – Tóti – Philip – Úlli

Hilmar Geir – Goran – Gummi – Ásgeir

Denis Curic – Ómar Karl

Varamenn; Amir, Pétur Örn, Hilmar Emils., Davíð Ellerts., Garðar.

Meiddir: Óli Jón og Edilon

Leikurinn byrjað frekar rólega. Fyrsta færið fengu hinsvegar heimamenn er Denis Curic átti hörkuskot en Einar Hjörleifsson í marki Ólafsvíkinga varði í horn, Philip Fritschmann átti síðan skot eftir hornspyrnuna, en skotið framhjá.

Fyrsta færi gestanna var síðan á 13.mínútu er Eyþór Guðnason átti skalla framhjá Atla í marki Hauka, sem var kominn ansi framarlega en Haukar náðu að bjarga. Stuttu síðar átti Brynjar Víðisson sendingu á Eyþór en skot hans beint á Atla.

Eftir þetta héldu heimamenn boltanum sín á milli á meðan gestirnir reyndu að sækja með löngum boltum. Staðan í hálfleik var 0-0.

Eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik fékk Jón Pétur Pétursson sem hafði verið inná í nokkrar mínútur beint rautt eftir tilgangslausa tæklingu á Ásgeiri Ingólfssyni. Eftir þetta sóttu Haukamenn af krafti, Denis Curic átti skalla að marki eftir fyrirgjöf frá Jónasi Bjarnasyni, en Einar varði vel.

Í næstu sókn fengu Víkingar besti færi leiksins, en það fékk Eyþór Guðnason, en hann var einn á móti Atla en skot hans framhjá. Haukar fengu svo gott færi í næstu sókn, Curic átti skot inn í teig en skotið afar máttlaust og Einar var í engum erfiðleikum að handsama boltann.

Á 67.mínútu var síðan brotið á Hilmari Geir Eiðssyni fimm metrum fyrir framan vítateig Víkings, hann tók spyrnuna sjálfa, skotið í slánna og inn, óverjandi fyrir Einar. Eftir markið héldu Haukar áfram að sækja, fyrst átti Ásgeir skot langt fyrir utan teig, það virtist vera engin hætta á ferðum en skot hans fór rétt yfir markið. Stuttu síðar gerði Goran Lukic það sama nema skot hans var mjög gott og varði Einar það ævintýralega, án efa markvarsla dagsins.

Eftir þetta tóku Víkingar flest öll völd á vellinum og fengu nokkur afbragðsfæri til að jafna leikinn. Það var síðan á 92.mínútu sem Örvar Sær Gíslason, dómari leiksins dæmdi afar umdeilda vítaspyrnu. Á punktinn fór Brynjar Víðisson og skoraði hann úr öryggi. Haukar fengu síðan síðasta tækifæri leiksins til að jafna, er Hilmar Geir tók aukaspyrnu á svipuðum stað og hann skoraði úr, fyrr í leiknum. En skot hans rétt yfir og þar með sat, jafntefli á Ásvöllum í dag.

Fínn leikur hjá liðinu, Philip var traustur í vörninni og Guðmundur Kristjáns. og Goran Lukic héldu miðjunni vel og héldu spilinu algjörlega uppi í leiknum. Næsti leikur er á útivelli fyrir austan, er okkar menn mæta Fjarðabyggð. Næsti heimaleikur er svo gegn Víkingi Reykjavík en við munum kynna þann leik síðar.

Áhorfendur í dag voru fjölmargir og vonandi að þetta sé það sem koma skal í sumar.

Andri Marteinsson er greinilega að byggja upp nýtt lið og er framtíðin björt. Hvetjum liðið áfram í 1.deildinni og verum jákvæð.

ÁFRAM HAUKAR