Meistaraflokkur spilaði leik í 2. deildinni miðvikurdaginn 1. ágúst en leikurinn var á móti KS/Leiftri á Siglufjarðarvelli en veðrið var þokkalegt skúrir, logn og hitinn góður. Fyrir leikinn voru liðin í 1. og 4. sæti með 25 stig og 21 stig þar sem Haukar voru ofar.
Byrjunarlið Haukar var þannig skipað að Amir var í markinu og í vörninni voru Þórhallur Dan(fyrirliði), Óli Jón, Jónas og Davíð E. Á miðjunni voru Goran, Edilon, Úlfar Hrafn og Hilmar Geir og í fremstu víglínu var Ómar Karl og fyrir aftan hann var Ásgeir Þór.
Fyrri hálfleikur byrjaði með því að KS/Leiftur voru mun betra liðið og sköpuðu sér nokkur góð færi og á 6. mínútu áttu heimamenn góðan skalla sem Amir varði glæsilega. Eftir þetta færi voru KS/Leifur ennþá mun betri en þegar líða fór á hálfleikinn sóttu Haukar í sig veðrið og fóru að skapa sér nokkur færi sem traustir varnamenn heimamanna náðu að stoppa á síðustu stundu.
Í seinni hálfleik náðu liðin að sína betri fótbolta og á 71. mínútu átti Goran góðan sprett upp miðjuna þar sem hann lék á nokkra leikmenn KS/Leifturs síðan gaf Goran boltan á Yared Yedenekachew sem kom inn á sem varamaður fyrr í seinni hálfleik en skotið frá honum fór framhjá. En eftir að Yared kom inn á færðist meira líf í sóknarleik Haukanna sem hafði verði nokkuð daufur framan af leik.
Heimamenn náðu góðri sókn á 75. mínútu þar sem fyrirgjöf kom frá hægri á Ragnar Hauksson, spilandi þjálfara KS/Leifturs, sem átti skot sem Amir varði og eftir það varð mikið klafs inn í teig Hauka og Ragnar náði noltanum aftur og skoraði og staðan orðin 1 – 0 fyrir KS/Leiftur. Heimamönnum tókst því ekki að verða fyrsta liðið í sumar til þess að leggja Hauka því á 87. mínútu tók Þórhallur Dan snögga aukaspyrnu á vinstri vænginn þar sem Edilon tók við boltanum og gaf glæsilega sendingu fyrir á Ómar Karl sem skallaði boltann í netið og jafnaði fyrir Hauka og þar við sat.
Í leiknum var Amir án nokkurs vafa besti maður Hauka þar sem hann hélt Haukum inn í leiknum sem nokkrum glæsilegum vörslum, Þórhallur Dan var líka mjög traustur í vörn Hauka. Eftir leikinn eru Haukar ennþá í efsta sætinu með 26 stig tveimur stigum meira en ÍR sem koma næsti með 24 stig. Næsti leikur Hauka er heimaleikur á móti Aftureldingu á Ásvöllum fimmtudaginn 9. ágúst kl. 19:00. Næsti leikur eftir þsð er á móti Fjölni í bikarnum mánudaginn 13. ágúst kl. 19:00 á Fjönisvelli. Bið ég því fókl um að fjölmenna á þessa mikilvægu leiki áfram Haukar!!!