Það var hart tekist á á Ásvöllum í gær þegar Haukar mættu HK í 2. flokki. Haukar voru staðráðnir í að taka sig saman í andlitinu eftir fremur slakt gengi að undanförnu. Í síðustu viku töpuðu þeir fyrir Keflavík, 3-1, og höfðu þeir með tapað fjórum og sigrað einn í B-riðli Íslandsmótsins. HK-mönnum hafði gengið ívið betur og voru fyrir leik liðanna einir á toppi riðilsins.
Leikurinn byrjaði ágætlega og voru Haukarnir ívið sterkari til að byrja með. Andri fékk gott færi snemma leiks en markvörðurinn varði frá honum. Síðan reyndi Jónas geimskot eftir góða sendingu frá Hilmari Trausta en án árangurs. HK-menn fengu nokkur hálffæri og voru Haukarnir oft og tíðum heppnir að þeir náðu ekki að nýta þau betur. Auk þess greip Sigurbjörn markmaður vel inn í stöku sinnum og varði mjög vel. En eftir jafnan fyrri hálfleik var staðan jöfn, 0-0, í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði vel og var örlítið opnari og skemmtilegri. Eftir ágætis færi á báða bóga náðu HK-menn að komast yfir á 60. mínútu þegar leikmaður þeirra náði að skalla boltann í netið eftir miklan atgang í teignum eftir hornspyrnu. Haukar voru ekki lengi að svara fyrir sig, því á 65. mínútu náðu þeir að jafna. Jónas átti þá sendingu á Garðar, sem sendi svo boltann á Úlfar, sem sendi boltann loks inn fyrir vörnina á Andra, sem náði að setja boltann fram hjá markverðinum og í netið, 1-1. Adam var þó ekki lengi í Paradís, því að HK-menn komust fljótlega yfir þegar sóknarmaður þeirra náði að lyfta boltanum yfir Sigurbjörn, sem misreiknaði sig í úthlaupi. Voru það einu mistök hans í leiknum en hann stóð sig mjög vel í leiknum og hélt Haukaliðinu inni í leiknum með góðri markvörslu. Eftir markið sóttu HK meira og voru hættulegri en Haukar virtust að sama skapi heillum horfnir. Þeir lögðu þó ekki árar í bát og uppskáru laun erfiðisins þegar þeir skoruðu mark á 80. mínútu eftir góða sókn. Andri náði þá að komast upp að endamörkum og gaf fyrir á nærstöngina, þar sem Úlfar náði að koma boltanum yfir marklínuna eftir atgang í markteignum. Eftir markið reyndu bæði lið að sækja með því að leiðarljósi að tryggja sér sigurinn. Úlfar fékk gott færi á 86. mínútu þegar hann var kominn einn gegn markverði en hann sá við honum og varði boltann út í teig. Úlfar náð frákastinu og renndi boltanum út á Andra, sem lét vaða á markið en markvörðurinn varði aftur en sókninni var hins vegar ekki enn lokið, því Guðjón náði frákastinu og skaut enn og aftur á markið en markmaðurinn, besti maður HK-inga í leiknum, sá enn og aftur við Haukamönnum. Þá fjaraði leikurinn út og úrslitin því jafntefli, 2-2, sem verða að teljast sanngjörn úrslit, því sigurinn hefði getað endað hvorum megin sem var.
Það var greinilegt að til leiks kom allt annað Haukalið en í undanförnum leikjum. Baráttan var í fyrirrúmi og liðið sýndi góðan karakter að gefast ekki upp í stöðunni
2-1. Þeir héldu áfram enda fór sem fór. Með smá heppni hefðu þeir getað náð öllum þremur stigunum. Allir stóðu fyrir sínu en Sigurbjörn var að öðrum ólöstuðum besti maður liðsins. Vonandi er þetta sem koma skal hjá Haukaliðinu.
Lið Hauka var þannig skipað:
Sigurbjörn
Frans-Dagur-Ellert-Þórhallur
Guðjón-Jónas-Hilmar Trausti-Úlfar
Andri-Garðar
Viktor Ari skipti við Frans á 45. mínútu, Vilhjálmur við Hilmar Trausta á 65. mínútu og Guðbjörn við Þórhall á 80. mínútu.