Jæja, þá er það búið ………..

Herslumuninn vantaði hjá stelpunum okkar er þær töpuðu fyrir ÍBV í Eyjum í kvöld 22-20. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en rétt undir lokin náðu heimamenn að síga framúr. Vitað var fyrirfram að staðan var mjög erfið fyrir stelpurnar okkar, komnar 2-0 undir og e.t.v. of miklar kröfur gerðar til þeirra að fara til Eyja og vinna lið sem kallað hefur verið “landslið Evrópu”. En við vitum hvað þær geta og með smá heppni hefði þetta tekist . En það fór sem fór núna og óskum við ÍBV til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.