Eins og fram kemur á kki.is hefur aganefnd KKÍ dæmt í máli Semaj Inge sem vikið var úr húsi í gær í öðrum leik Hauka og Þórs Þorl. um laust sæti í Iceland Expressdeildinni á næstu leiktíð.
Fram kemur í úrskurði að þar sem þetta er hans fyrsta brottvísun á þessu leiktímabili þá fái hann bara áminningu.
Á kki.is kemur þetta fram.
Aga- og úrskurðarnefnd hefur skilað niðurstöðu úr þremur málum í dag.
Í máli Semaj Inge hjá Haukum
Hinn kærði fékk tvær tæknivillur í leiknum og var gert að yfirgefa völlinn.
Ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðamál á við í þessu máli og segir eftirfarandi:
Um er að ræða fyrstu brottvísun leikmanns á þessu tímabili og telur nefndin því rétt að kærði hljóti áminningu, sbr. ákvæði a. liðar 2. mgr. 12. gr., sbr. og 1. mgr. 6. gr. sömu reglugerðar.
Úrskurðarorð:
Hinn kærði, Semaj Inge, sætir áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshöfn og Hauka í leik í undanúrslitum 1 deild mfl. karla, sem fram fór þann 22. mars 2010.
Lesa má allan úrskurðinn á kki.is