Haukar í Reykjavíkurmaraþonið
Hlaupahópur Almenningsíþróttadeildar Hauka hefur æft að kappi í sumar fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram 23. ágúst. Hlaupahópurinn fer stöðugt stækkandi. 12-15 manna kjarni hleypur að jafnaði en hátt í 30 manns hafa hlaupið með hópnum í vetur.
Hópurinn leggur af stað kl. 17:30 á miðvikudögum og kl. 10:00 á laugardögum. Það er öllum velkomið að slást í hópinn.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður í síma 897-7451.