Hitaðu upp fyrir sumarið með meistaraflokki Hauka í fótbolta

Bjössi Hreiðars stjórnar leikmannakynningunni af sinni alkunnu snilld

Strákarnir í meistaraflokki karla í fótbolta hvetja þig og alla Hauka-menn til að mæta í veislusalinn á Ásvöllum föstudaginn 19. apríl kl.20:00 til að taka þátt í upphitun fyrir komandi Íslandsmót sem hefst 9. maí.

Sigurbjörn Hreiðars. (aðstoðarþjálfari, leikmaður og meistari) mun byrja á léttri leikmanna- og þjálfarakynningu af sinni alkunnu snilld, leikmenn verða með Fótbolta PubQuiz og svo ætlum við að eiga saman skemmtilegt kvöld þar sem við búum okkur undir spennandi sumar.

Frábært tilboð á skráningu í Hauka í horni fyrir þá sem vilja tryggja sig á alla heimaleiki í sumar á hagstæðum kjörum!

Það er að sjálfsögðu ókeypis inn og verða veitingar í fljótandi formi í boði á vægu verði!

Hlökkum til að sjá þig!

Með Hauka-kveðju,

Meistaraflokkur karla í fótbolta