Haukastelpur komnar í sumarfrí

Haukastelpur eru komnar í sumarfrí eftir hetjulega baráttu við KR í Frostaskjóli fyrr í kvöld. Leikurinn var jafn frá fyrstu mínútu og áttu Haukar frumkvæðið framan af leik. Haukar leiddu í hálfleik með átta stigum, 26-34.

Jafnt var á öllum tölum í fjórða leikhluta og var leikurinn jafn 61-61 þegar skammt var til leik. Jenny Pfeiffer-Finora setti niður seinustu körfu KR rétt áður en klukkan rann út og KR fagnaði 63-61 sigri og 3-0 sigri í einvíginu.

Stigahæst Hauka var Kiki Lund með 15 stig en henni næst var Heather Ezell með 13 stig, 8 fráköst og 7 stoðsendingar.