Haukar – Valur, mfl.kv

Í kvöld komu Valsstelpur í heimsókn á Ásvelli. Fyrir leikinn voru Valsstelpur með 7 stig í 5. sæti en okkar stelpur með 6 stig í 6. sæti. Það var því ljóst að liðið sem sigraði kæmist í 1. eða 2. sæti.

Leikurinn var jafn frá upphafi til enda. Okkar stelpur skoruðu fyrstu tvö mörkin. Þær leiddu svo allan hálfleikinn með einu marki þar til í stöðunni 12-13. Okkar stelpur komust aftur yfir 14-13 og svo tveimur mörkum yfir fyrir hálfleik 17-15. Það voru hálfleikstölur.

Í síðari hálfleik náðu Haukastelpur þriggja marka forskoti 19-16 og var munurinn 2 eða 3 mörk þar til í stöðunni 21-21. Okkar stelpur náðu þá aftur að komast tveimur mörkum yfir 23-21 en Valsstelpur jöfnuðu 24-24. Þær komust svo yfir 24-25, í fyrsta skipti frá því í stöðunni 12-13. Síðustu mínúturnar voru æsispennandi og skiptust liðin á að skora, Haukar jöfnuðu, Valur komst yfir…. Þegar flautan gall var niðurstaðan eins marks tap og stelpurnar okkar því áfram í 6.sæti með 6 stig. Valur komst hins vegar í fyrsta sæti með 9 stig.

Næsti leikur hjá stelpunum er á miðvikudaginn þegar þær fara til Vestmannaeyja. Næsti leikur á landi er gegn Gróttu, laugardaginn 28.október á Seltjarnarnesi. Eftir þann leik kemur hálfs mánaðar pása.

Haukar-Valur mfl.kv.

Minnum á leikinn hjá stelpunum á laugardaginn kl. 14.00 – ath. breyttan leiktíma. Haukamenn fjöllmennum og styðjum stelpurnar.