Haukar-Valur 1. leikur

Hann var glæsilegur sigurinn hjá strákunum okkar á Val í fyrsta leiknum í úrslitunum 33-28. Þeir mættu tilbúnir í leikinn, léku á alls oddi og fóru á kostum hvað eftir annað. Vörnin var massív og hraðaupphlaupin eftir því.

Haukar byrjuðu vel, skoruðu fyrsta markið og náðu undirtökunum strax í upphafi og héldu í raun takinu á gestunum allan leikinn. Þeir komust í 4-1 og 8-4. Valur jafnaði síðan 9-9 um miðjan fyrri hálfleik en þá gáfu okkar menn aftur í og breyttu stöðunni í 14-10. Í hálfleik var 15-13.
Í byrjun seinni hálfleiks jafnaði Valur 16-16 og 17-17 en aftur settu strákarnir okkar í gír, skoruðu næstu fimm mörk og breyttu stöðunni í 22-17. Eftir það var aldrei spurning um sigur.
Haukarnir höfðu tökin á leiknum allan tímann þó svo Valur næði að jafna. Þegar pressan kom á okkar menn þá var bætt í og forskotið aukið og þeir misstu leikinn aldrei úr höndum sér.

Við þökkum strákunum okkar fyrir frábæra skemmtun og bíðum spennt eftir sama fjöri á þriðjudaginn í Valsheimilinu. Væntanlega mæta Valsmenn ennþá grimmari til leiks en við erum líka fullviss um að strákarnir okkar mæta tilbúnir í þann slag og ætla sér ekkert annað en sigur. Við hvetjum stuðningsmenn Hauka til að fjölmenna og styðja strákana okkar áfram. Þetta er svo rosalega gaman.

Áfram Haukar.