Haukar – Snæfell í kvöld kl. 19:15 í Dominos deild kvenna

palinaÍslandsmeistararnir úr Hólminum koma í heimsókn í Schenkerhöllina í kvöld og hefst leikurinn kl. 19:15

Haukar hafa spilað einn leik í deildinni en þær sátu hjá í II. umferðinni. Stelpurnar gerðu þá góða ferð í Garðabæinn og unnu Stjörnuna í skemmtilegum og vel leiknum leik sem sýndur var í beinni útsendingu á Stöð2. Leikurinn á móti Stjörnunni var hraður og var mikið skorað hjá báðum liðum. Haukastelpurnar, með Helenu Sverrisdóttur í fararbroddi unnu sanngjarnan 11 stiga sigur, 75-86.

Helena átti stórleik, skoraði 35 stig, tók 15 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og stal 6 boltum sem gaf henni hvorki meira né minna en 54 framlagsstig. Haukaliðið í heild spilaði mjög vel og var gaman að sjá Pálínu aftur í Haukabúning en hún er einn orkubolti á vellinum og þrátt fyrir að vera ekki stærsti leikmaðurinn á vellinum tók hún 7 fráköst og skoraði 13 stig.

Það má búast við hörkuleik í kvöld á móti góðu liði Hólmara. Þær hafa styrkst töluvert en landsliðkonana Bryndís Magnúsdóttir kom nýlega til liðs við Íslandsmeistarana frá Keflvíkingum og styrkir þær mikið í kringum teiginn. Snæfell er búið að vinna fyrstu tvo leiki sína og hafa verið að spila vel.

Leikirnir í körfunni hafa verið hin besta skemmtun og því hvetjum við alla til að mæta í Schenkerhöllina og hvetja stelpurnar til sigur.

Áfram Haukar.