Mfl. karla í körfu spilar sinn fyrsta leik í Dominos deildinni í kvöld í Schenkerhöllinni kl. 19:15.
Strákarnir hafa verið að spila ágætlega á undirbúningstíEmabilinu og er búist við miklu af liðinu fyrir komandi tímabil. Flestir „sérfræðingar“ um körfunna eru sammála því að liðið eigi að geta spilað um þann stóra í vetur en til þess þarf margt að ganga upp.
Allir í liðinu og í kringum liðið eru búnir að bíða spenntir eftir því að byrja tímabilið og er því eftirvæntingin mikil fyrir fyrsta leik og munu strákarnir koma brjálaðir til leiks í kvöld.
Haukunum er oftast spáð í 3-4 sæti í deildinni en hópurinn er sterkur fyrir tímabilið. Að mestu leyti er byggt á ungum uppöldum strákum sem hafa allir spilað fullt af leikjum fyrir yngri landslið KKÍ og var Emil Barja valinn í A-landsliðshóp fyrir Evrópukeppnina í sumar en datt út sem 15 maður. Kári, Hjálmar, Haukur eru reynslunni ríkari eftir síðustu tvö tímabil og hafa verið að styrkjast mikið og svo hefur Kiddi Marinós verið í stöðugri framför. Reynsluboltinn Kiddi Jónasar hefur æft vel og kemur tilbúinn inn í tímabilið en átti góðar rispur í úrslitakeppninni í fyrra. Nokkrir leikmenn munu spila í fyrsta skiptið í Haukatreyjunni í kvöld, Finnur Magnússon sem kom frá KR og kemur með mikla reynslu og hann hefur verið að spila vel í æfingaleikjunum og má búast við miklu af honum í vetur. Að auki er Guðni Heiðar Valentínusarson kominn frá Val en hann er uppalinn Hólmari og mætir því sínum gömlu félögum í kvöld. Nýr útlendingur er í liðinnu, Stephen Madison og er eins og ávallt búist við miklu af honum.
Við hvetjum alla til að gera sér ferð í Schenkerhöllina í kvöld, mæta snemma og fá sér börger og hita vel upp fyrir leikinn.
Áfram Haukar.