HAUKAR SIGRA Í 3. DEILD.

Skákdeild Hauka gerði sér lítið fyrir og vann 3. deildina í skák sem fram fór nú um helgina.
Við unnum KR í síðustu umferð 3,5-2,5 í síðustu umferðinni. Fyrir seinni hlutann höfðum við 2. vinninga forskot á KR og ef eithvað er erfiðara prógram eftir. Á föstudagskvöldið kepptum við við TS og unnum sannfærandi sigur 5-1. Síðan á laugardagsmorgunin töpuðum við fyrir Helli c-sveit 2-4. Þá var bara síðast umferðin eftir, úrslitaviðureignin við KR. Strákarnir sýndu svo sannarlega hvað þeim býr og unnu 3,5-2,5.
Þá er bara 2. deildin að ár.
B-liði lenti í 9 sæti og hefðu með smá heppni getað keppt um að komast upp í 3. deild. Það tekst bara á næsta ári.
Til hamingju Skákmenn Hauka og aðrir Haukamenn.