Haukastúlkur taka á móti Njarðvíkingum í kvöld kl. 19:15 í Lengjubikarnum
Þetta er fyrsti leikur stelpnanna á þessu tímabili og munu Haukarnir tefla fram mikið breyttu liði frá síðasta ári. 5 lykilmenn hafa farið á aðrar slóðir eða eru í tímabundnu leyfi en Haukar geta tekið vel við þessum áföllum og eiga margar ungar og efnilegar stelpur sem bíða tækifæris á að sína hvers þær eru megnugar.
Lið Haukanna verður mjög ungt í vetur og munu stúlkur í stúlnaflokki spila stórt hlutverk á komandi tímabili, en auk þess eru nokkrir reyndari leikmenn og besti erlendi leikmaður deildarinnar síðustu þrjú tímabil, LeLe Hardy.