Haukar leika til úrslita á laugardaginn

HaukarHaukar og Grótta munu eigast við í úrslitaleik B-deildar Fótbolta.net mótsins á laugardaginn næstkomandi. Leikurinn fer fram í Kórnum og hefst klukkan 19:30.

Haukar unnu sinn riðil með fullu húsi stiga, en Haukar unnu Njarðvík í lokaleik riðilsins 3-2 síðastliðin föstudag. Áður höfðu Haukar haft betur gegn Tindastól og HK.

Grótta unnu einnig sinn riðil með fullu húsi stiga. Þeir höfðu betur í leikjum sínum gegn BÍ/Bolungarvík, Grindavík og Aftureldingu. 

Grótta leikur næsta sumar í 2.deildinni. Ef leikurinn endar með jafntefli verður farið beint í vítaspyrnukepni til að skera úr um úrslit.

Aðrir leikir í Fótbolta.net mótinu á laugardaginn eru eftirfarandi:

Úrslitaleikur – Laugardag: 
19:30 Haukar – Grótta (Kórinn) 

Leikur um 3. sæti – Laugardag: 
09:00 HK – BÍ/Bolungarvík (Kórinn) 

Leikur um 5. sæti – Fimmtudag: 
18:30 Njarðvík – Grindavík (Reykjaneshöllin) 

Leikur um 7. sæti – Laugardag: 
11:00 Tindastóll – Afturelding (Varmárvöllur – Gervigras)