Haukar – KS/Leiftur

Á laugardaginn mæta okkar strákar KS/Leiftur á Ásvöllum og mun leikurinn vera flautaður á klukkan 14:00.

Eftir leiki kvöldsins eru Hauka strákarnir komnir niður í 5.sætið en með sigri á laugardaginn geta þeir komist uppfyrir KA að nýju. Þetta er þriðji síðasti heimaleikurinn hjá Haukum í sumar og því um að gera að nýta sér það og kíkja á völlinn og hvetja strákana. Útileikirnir sem strákarnir eiga eftir eru ekki alveg í leiðinni fyrir alla, því strákarnir eiga eftir að leika gegn ÍBV í Eyjum og Þór á Akureyri.

Fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á dómaramálunum þá mun Kristinn Jakobsson dæma leikinn og honum til aðstoðar verða þeir Magnús Jón Björgvinsson og Eðvarð Eðvarðsson.

Búist er við hörkuleik, strákarnir eru staðráðnir í að koma sér aftur í 4.sætið og sýna sig og sanna fyrir sjálfum sér og öðru Hauka fólki, en eins og kannski flestir vita hefur gengi liðsins verið dapurt að undanförnu og eru þeir til að mynda einungis með 3 stig í seinni umferðinni.
Norðanmenn munu að öllum líkindum gefa sig allan í leikinn en þeir eru í bullandi fall baráttu með 11 stig en þeir verma neðsta sætið í deildinni.

Fyrri leikur liðanna endaði með sigri okkar manna 4-1. Ómar Karl, Goran, Denis og Ásgeir skoruðu mörk Hauka í leiknum.

Haukar – KS/Leiftur á laugardaginn klukkan 14:00 !