Haukar-KA Oddaleikur

Frábær sigur hjá strákunum okkar er þeir sigruðu KA 33-29 á Ásvöllum í dag. Þeir mættu mjög einbeittir og ákveðnir til leiks, tilbúnir að leggja allt í leikinn og uppskáru eftir því, réttinn til að spila um Íslandsmeistaratitilinn.

KA skoraði fyrstu tvö mörkin en Haukar jöfnuðu 2-2, síðan var jafnt 3-3 og 4-4 en þá tóku okkar menn völdin og réðu á vellinum eftir það. Með frábærum leik breyttu þeir stöðunni úr 9-7 í 16-8. Vörnin var rosaleg og Birkir Ívar í banastuði í markinu og saman skilaði þetta fjölda hraðaupphlaupa. Í hálfleik var staðan 20-15. Sóknarnýtingin var rúmlega 80% í fyrri hálfleik sem er hreint magnað.
Í seinni hálfleik voru strákarnir okkar alltaf skerfinu á undan en það er erfitt að halda svona góðri forystu á móti jafngóðu liði og KA en þeir náðu samt aldrei að komast nær en 3 mörk. Strákarnir okkar héldu haus og gott betur og unnu eins og fyrri segir frábæan sigur.

Það var fín stemming á Ásvöllum og nú bíða leikmenn og stuðningsmenn Hauka spenntir eftir úrslitaleikjunum. Fyrsti leikur verður á Ásvöllum sunnudaginn 9. maí. Nú hlöðum við batteríin og mætum öll í fantaformi og tökum á móti Val með bros á vör.