Haukar unnu góðan sigur á Þór frá Þorlákshöfn í gærkvöldi þegar liðin mættust öðru sinni í undanúrslitum um laust sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Þór vann fyrri leik liðanna með einu stigi eftir ótrúlega endurkomu en Haukar leiddu í þeim leik með 18 stigum í hálfleik.
Það var ljóst að lið Hauka var vel einbeitt og ætlaði sér sigur í Þorlákshöfn. Menn voru ekki sáttir við að fara í sumarfrí að svo stöddu og var barátta liðsins til fyrirmyndar. Haukar fleygðu sér á hvern þann lausa bolta sem í boði var og vörn þeirra var virkilega þétt.
Líkt og í fyrri leiknum spiluðu heimamenn í Þór svæðisvörn nær allan leikinn. Haukar hafa greinilega farið vel yfir fyrri leikinn því allta annað var að sjá sóknarleikinn gegn svæðisvörninni og gekk boltinn vel á milli manna. Þessi boltahreyfing skilaði mörgum auðveldum körfum og hægt og bítandi juku Haukar muninn og unnu á endanum 16 stiga sigur 73-89.
Leikurinn var jafn í upphafi og klárt mál að bæði lið ætluðu sér sigur. Haukar náðu hins vegar góðu forskot snemma í leiknum sem að Þór vann upp fyrir hálfleik. Staðan í hálfleik var 44-48 fyrir Hauka.
Haukar náðu mest 19 stiga forskoti í fjórða leikhluta og spilaði glimrandi vel. Um miðjan leikhlutan var Semaj Inge vikið af velli fyrir sína aðra tæknivillu og óvíst er hvort hann leiki með á morgun þegar liðin mætast í oddaleik undanúrslitanna.
Semaj Inge var stigahæstur Haukamanna með 31 stig en Óskar Magnússon var honum næstur með 18.