Eftir frábæran sigur í gær gegn HC Zomimak 34 – 20 í EHF bikarnum þá er komið af seinni hálfleik í þessari rimmu en seinni leikur liðanna er í dag í Schenkerhöllinni kl. 16:00.
Haukastrákarnir mættu grimmir til leiks og eftir jafnar fyrstu mínútur þá gáfu Haukastrákarnir í og voru 17 – 7 yfir í hálfleik og gáfu gestunum svo ekki neinn möguleika í seinni hálfleik og uppskáru góðan 34 – 20 sigur. Markahæðstur í leiknum í gær var Janus Daði með 10 mörk og svo skoraði Adam Haukur 7 mörk einnig voru báðir markmenn Hauka í góðum gír og vörðu báðir um 50% skota sem komu á markið.
Þótt að útlitið sé kannski gott á má ekki líta á leikinn í dag sem formsatriði því lið HC Zomimak er hörkulið og má ekki búast við örðu en að leikurinn í dag verði hörkuleikur og mun stuðningur áhorfenda skipta sköpum eins og svo oft áður og um að gera fyrir fólk að fölmenna kl. 16:00 í Schenkerhöllina og styðja strákanna til sigurs. Áfram Haukar!