Haukar – HC Zomimak í Evrópukeppninni á föstudag og laugardag

handbolti-karlar

Haukar munu keppa við HC Zomimak í Evrópukeppni meistaraliða á föstudag og laugardag. Báðir leikir verða leiknir í Schenkerhöllinni og því er mikilvægt fyrir strákana að fá góðan stuðning. Þetta eru evrópuleikir nr. 103 og 104 hjá Haukum.

Fyrri leikurinn er kl. 20:00 á föstudaginn og síðari leikurinn verður laugardaginn kl. 16:00. Á undan þeim leik spilar mfl. kvenna við Stjörnuna og hefst sá leikur kl. 13:30. Við hvetjum alla til að mæta á föstudaginn og svo auðvitað á laugardaginn en þá eru tveir stór leikir og því mikill handboltadagur hér í Schenkerhöllinni á laugardaginn.

HC Zomimak varð í öðru sæti í deildinni í Makedoníu og spila núna í deild þar sem öll sterkustu lið austur evrópu spila. Þetta lið á að vera mjög sterkt lið og er skipað nokkuð gríðarlegum sterkum leikmönnum sem koma flestir frá fyrrum Júgóslavíu og Makedóniu.

Haukarnir hafa byrjað tímabilið ágætlega og hafa sýnt oft á tíðum að þeir eru með mjög gott lið. Aðeins hefur vantað uppá stöðugleika en kannski ekki við öðru að búast í byrjun tímabils. Strákarnir eru ákveðnir í því að sýna úr hverju þeir eru gerðir í þessum tveim leikjum og munu koma ákveðnir til leiks, en þeir hafa æft vel fyrir þessa leiki.