Í kvöld eigast við Haukar og Grótta í N1-deild karla á Ásvöllum. Hefst leikurinn klukkan 19:30.
Það má búast við hörkuleik en ekki eru liðnar nema tæplega tvær vikur síðan liðin mættust síðast á Nesinu og þar fóru Haukar með sigur úr bítum 22-26 eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik.
Allir ættu að vera inní fjaðrafokinu í kringum fyrrverandi þjálfara Gróttu og næsta þjálfara okkar Haukamanna, Halldór Ingólfsson og mun Gróttumenn líklega mæta dýrvitlausir með nýjan mann í brúnni, engan annan en Geir Sveinsson auk margra fyrrverandi leikmenn Hauka.
Bæði lið töpuðu síðustu leikjum sínum í deildinni, Haukar gegn FH og Grótta gegn HK. Haukaliðið er með pálman í höndunum á toppi deildarinnar en geta hæglega misst niður það fjögurra stiga forskot sem þeir eru með á næsta lið með leikjum eins og þeir sýndu gegn FH í síðustu umferð.
Grótta er hinsvegar í 6.sæti deildarinnar með 8 stig en einungis stigi frá fallsæti og þurfa nauðsynlega á sigri að halda.
Við hvetjum alla til að fjölmenna á Ásvelli í kvöld – Áfram Haukar!