Haukar-Fylkir í 8-liða úrslitum

Rétt í þessu var dregið í 8 liða úrslitum Bikarkeppni karla og mæta Haukar þar Fylkismönnum á Ásvöllum, annað hvort 23. eða 24. júlí.

Í þessum leik verður töluvert um að gamlir kunningjar endurnýji vinskapinn en Þórhallur Dan, fyrirliði Hauka, er þrátt fyrir að vera af mikilli Haukaætt uppalinn í Árbænum og lék lengstum með Fylki.

Þá rennnur þykkt Haukablóð í þjálfara Fylkismanna, Leifi Garðarssyni, sem steig sín fyrstu spor á knattspyrnuvellinum hjá Haukum og var lengi viðloðandi körfuknattleiksdeild Hauka.

Í samtali við fotbolti.net hafðu Þórhallur Dan þetta um dráttinn að segja.

,,Ég vildi KR á KR-vellinum en úr því við fengum ekki KR þá er alveg eins gott að fá Fylki heima. Það er líka gaman að Hauka eru eina liðið úr Hafnarfirði sem eru í 8-liða úrslitunum,“ sagði Þórhallur Dan en honum líst vel á að mæta sínum gömlu félögum í Fylki.

Haukar hafa haft heppnina með sér í ár og fengið heimaleik í öllum umferðum Bikarkeppninnar. Fylkir á hinn bóginn hafa leikið alla leiki sína í Bikarkeppninni þetta árið á útivöllum. Haukar og Fylkir mættust einmitt í bikarnum á Ásvöllum árið 2002 og þá höfðu Fylkismenn nauman sigur 1-2 eftir hörkuleik.

Í leiðinni minnum við á heimaleik Hauka á Ásvöllum á morgun, laugardaginn 5. júlí, kl. 14:00.