Haukar – FH í Faxanum á sunnudag

Það verður Hafnarfjarðarslagur á Ásvöllum á sunnudaginn þegar Haukar og FH mætast í B riðli Faxaflóamóts kvenna. Leikurinn hefst klukkan 16.00.

Haukar hafa unnið báða sína leiki og sitja á toppi riðilsins með sex stig eins og ÍA sem hefur leikið einum leik fleira. FH er með þrjú stig eftir tvo leiki.

Við hvetjum Hauka-fólk til að fjölmenna á Ásvelli á sunnudaginn og hvetja stelpurnar til sigurs – bara klæða sig vel.

Sjá stöðuna í riðilinum á vef KSÍ.

Áfram Haukar. Félagið mitt.