Það er þétt skipað leikjaplanið hjá meistaraflokki karla í handbolta þessa dagana. Eftir góðan sigur á Fram á mánudagskvöld er strax komið að næsta verkefni strákanna er þeir fara út á Seltjarnarnes og mæta þar heimamönnum í Gróttu í kvöld kl. 19:30.
Gróttumenn eru nýliðar í deildinni og hafa þeir leikið upp og ofan í deildinni til þessa en eini sigur þeirra kom þegar þeir unnu öruggan sigur á heimavelli á nágrönnum okkar í FH en í síðustu umferð tveimur umferðum hafa þeir mætt ofjörlum sínum í ÍBV og Val. Haukar eru hinsvega á góðu róli í deildinni og eru þeir efstir í deildinni ásamt 3 öðrum liðum með 4 sigra úr 5 leikjum.
Það er því um að gera fyrir Haukafólk að gera sér ferð út á Seltjarnarnes og styðja strákanna í baráttunni um að halda 1. sætinu en leikurinn hefst eins og fyrr segir kl. 19:30 í Hertz höllinni í kvöld. Áfram Haukar!