Á fimmtudaginn næstkomandi heimsækja okkar menn Víking Ólafsvík. Leikurinn hefst klukkan 20.00 á Ólafsvíkurvelli. En þetta er fyrsti leikurinn í seinni umferð 1.deildar.
Þegar liðið mættust á Ásvöllum í fyrstu umferðinni skyldu liðið jöfn 1-1. Mark Hauka skoraði Hilmar Geir Eiðsson á 69.mínútu, en mark hans kom beint úr aukaspyrnu, sláin inn. Jöfnunarmark Ólafsvíkingana kom aftur að móti úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Andri Marteinsson hafði þetta að segja eftir leikinn við Víking Ólafsvík;
,,Þetta eru töpuð stig, algjörlega. Við skoruðum gott mark en eftir það, þá virtist eins og menn hafi misst sjálfstraustið að halda bolta innan liðsins. Eins og panic hafi komið yfir liðið, einu marki yfir og einum manni fleiri þá gátum við ekki haldið boltanum og spilað saman.“
,,Fyrir leikinn vissi ég lítið um Víkingsliðið en þeir voru sterkir og þéttir. En Ejub hefur versnað sem þjálfari finnst mér, hann hélt að hann væri kominn hingað til að stjórna dómaranum og leiknum í 90.mínútur.“
Lið Hauka er töluvert búið að breytast frá því í fyrsta leik. Til að mynda hefur Atli Jónasson ekkert spilað síðustu leiki vegna veikinda, Guðmundur Kristjáns. Er farinn aftur til Breiðabliks, Ómar Karl hefur ekkert spilað upp á síðkastið vegna meiðsla og þá hefur Jónas verið inn og útúr liðinu. Aftur á móti hefur Amir komið inn fyrir Atla í markið, Hilmar Trausti var enn leikmaður Leiknis í fyrstu umferðinni, Davíð Ellerts., hefur verið að spila fanta vel í stöðu miðvarðar í stað Tóta sem hefur verið tæpur, Daniel Jones hefur verið að spila á miðjunni.
Svo má ekki gleyma Marco sem fær leikheimild að öllum líkindum á morgun og má því spila, Jónmundur Grétarsson mun svo ganga til liðs við Hauka á næstu dögum og spurning hvort hann verður kominn með leikheimild.
Óli Jón er allur að koma til og hann skoraði meiri segja í síðasta leik u23 gegn Víking/Berskir en Haukar sigruðu þann leik 4-1. Og því aldrei að vita hvort Óli Jón verði í hóp gegn Víking Ólafsvík.
Leikmannahópur Hauka er því orðin feiknasterkur og er það orðið vandasamt verk fyrir Sir. Andra Ferguson að velja fyrstu ellefu sem byrja inn á.
Fyrir það Haukafólk sem kemst ekki í Ólafsvíkina á fimmtudaginn, bendi ég fólki á að á vefsíðu Ólafsvíkinga www.vikingurol.tk hefur leikjum þeirra verið lýst í beinni textalýsingu og vonum við auðvitað fyrir það Haukafólk sem kemst ekki að engin breyting verði þar á. En auðvitað vonum við númer eitt, tvö og þrjú að Haukafólk sjái sér fært um að mæta og hvetji strákana áfram í þessu blíðskapar veðri sem spáð er. Með sigri Hauka og sigri Víkings Reykjavíkur á Selfossi munum við Haukamenn tyll a okkur í 2.sæti deildarinnar, sem ekki hefur gerst í manna minnum að ég held.
Haukar:
… hafa sigrað síðustu sjö leiki í deild og bikar.
… eru í 3.sæti með 21 stig, níu stigum á eftir ÍBV.
… eru með plús 7 í markatölu og hafa skorað næst flest mörk allra liða, 25 talsins.
… eru með markahæsta leikmann deildarinnar í liðinu, Denis Curic en hann hefur skorað 9 mörk.
… hafa fengið 10 af 21 stigum sínum á útivelli.
Víkingur Ólafsvík:
…sigruðu síðasta leik sinn 2-1 á heimavelli gegn KA, en sigurmark þeirra kom í uppbótartíma.
… eru í 7.sæti með 13 stig, átta stigum á eftir okkur.
… eru með mínús 7 í markatölu og hafa einungis skorað 8 mörk í deildinni.
… hafa skorað helming marka sinna í síðustu tveimur leikjum , 2-1 sigur og 2-3 tap. Þetta virðist því allt vera á uppleið hjá þeim.. en vonum að það verði samt ekki raunin.
… hafa fengið 10 af 13 stigum sínum á heimavelli.
Dómari leiksins verður Hans Kristján Scheving og honum til halds og traust verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Halldór Örn Þorsteinsson.
Víkingur Ólafsvík Haukar, fimmtudaginn 17.júlí, klukkan 20:00 .