Haukar 2 – Haukar

Í gær fór fram leikur aldarinnar eins og flestir vita. Það voru leikmenn Hauka 2, oft nefndir bumburnar, sem tóku á móti Haukum, meistaraflokki okkar. Leikurinn var í 32 liða úrslitum SS bikarsins.

Það voru leikmen Hauka 2 sem skoruðu fyrsta markið. Haukar fóru að tefja strax á fyrstu mínútu þegar þeir voru lengi að ná í boltann til að taka aukakast og ýmislegt annað. Haukar 2 voru þó ekki lengi með forustuna því Haukar jöfnuðu og komust svo yfir 1-2 og 2-6. Frá stöðunni 2-6 og þar til í stöðunni 10-16 var munurinn alltaf 4-7 mörk. Staðan í hálfleik var 14-23 Haukum í vil.

Síðari hálfleikurinn var mun skemmtilegri en sá fyrri þó svo að munurinn á milli liðanna hafi aðeins aukist. Staðan 14-23 í 18-33, sem sagt 4-10 í byrjun síðari hálfleiks. Lokatölur voru 33-47 Haukum í vil.

Markahæstir í liði Hauka 2 voru Óskar Þór Ármannsson og Gústaf Bjarnason með 7 mörk hvor, Þorkell Magnússon skoraði 6 og aðrir minna.

Markahæstur í liði Hauka var Jón Karl Björnsson með 8 mörk, Sigurbergur Sveinsson skoraði 7 mörk og Guðmundur Pedersen skoraði 6 mörk. Aðrir skoruðu minna en allir útispilarar Hauka skoruðu í leiknum. Síðastur til að skora var Arnar Pétursson en hann skoraði 1 mark í leiknum, og kom það þegar um 10 mínútur voru eftir.

Í marki Hauka 2 stóðu Ragnar Ragnarsson og Þorlákur Kjartansson. Þeir vörðu 5 skot hvor.
Í marki Hauka stóð mestan hluta leiksins Björn Ingi Friðþjófsson og varði hann 11 skot þar af eitt vítakast. Magnús Sigmundsson kom inn á í lok leiksins og varði 2 skot þar af eitt vítakast.

Næsti leikur Hauka verður gegn Fylki á sunnudaginn klukkan 16:00 í Fylkishöllinni. Í kvöld mætir ungmennaliðið, Haukar U, liði KR í bikarkeppninni. Leikurinn hefst klukkan 21:20 í DHL höllinni við Frostaskjól.

ÁFRAM HAUKAR!!