Í dag mættu „vambirnar“, Haukar 2, liði Fjölnis í bikarkeppni HSÍ. Bæði liðin leika í 2.deild kvenna og var því búist við jöfnum leik. Leikurinn var jafn allan tímann, munurinn varð aldrei meiri en 4 mörk. Staðan í hálfleik var 8-13 Fjölnisstúlkum í vil.
Í síðari hálfleik voru stelpurnar okkar mun betri. Þær minnkuðu muninn jafnt og þétt og þegar um 20 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik höfðu þær skorað 9 mörk gegn 3 mörkum Fjölnis. Staðan var þá orðin 17-16. Fjölnir jafnaði og eftir það skoruðu þær fjögur mörk gegn einu og sigruðu 18-21.
Berglindi Hafliðidóttir lék mjög vel í marki Haukastelpna og varði um 15 bolta. Ragnheiður Guðmundsdóttir, betur þekkt sem Bússí var markahæst með 7 mörk, Sandra Anelyte skoraði 4, Eva Þórðardóttir og Ragnheiður Berg skoruðu 2 mörk hvor og Harpa Þórðardóttir og Jóhanna Steingrímsdóttir skoruðu 1 mark hvor. Kristjana Ósk Jónsdóttir var eini leikmaður Hauka sem ekki komst á blað. Þjálfari liðsins í leiknum var Guðrún H. Aðalsteinsdóttir, betur þekkt sem Gunna Dóra.