Strákarnir í meistaraflokki hafa unnið tvo síðustu leikina í deildinni, þann síðasta 5-0 á móti Tindastól og eru með því búnir að koma sér úr fallbaráttunni.
Þetta er hins vegar jöfn deild og eru ekki mörg stig sem skilja að efstu liðin og þau í neðri hlutanum.
Nú í kvöld kemur topplið Leiknis í heimsókn og hafa strákarnir tækifæri til að sýna að þeir eiga heima í efri helmingi 1.deildar.
Við viljum hvetja alla stuðningsmenn Hauka til að mæta og styðja okkar lið til sigurs í kvöld.
Áfram Haukar.