Hlaupahópur Almenningsíþróttadeildar Hauka hefur æft að kappi í sumar fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram 23. ágúst. Hlaupahópurinn fer stöðugt stækkandi og er nú 16-18 manna kjarni fólks sem hittist á Ásvöllum alla miðvikudaga kl. 17:30 og á laugardaga kl. 10:00.
Það er öllum velkomið að slást í hópinn en nánari upplýsingar veitir Sigríður í síma 897-7451.