Haukar-ÍR – Frábær sigur

Glæsilegt var það hjá strákunum, er þeir sigruðu ÍR 25-22 á Ásvöllum í kvöld og náðu þar með forystunni í einvíginu. Haukar skoruðu fyrsta markið en gestirnir komust svo yfir 1-3 og 2-5. Þá kom glæsilegur kafli hjá okkar mönnum sem skoruðu níu mörk á móti einu og staðan orðinn 11-6 og Haukar komnir með góða forystu sem þeir létu ekki af hendi. Í hálfleik var staðan 11-8 en í byrjun seinni hálfleiks náðu gestirnir að minnka muninn í eitt mark 11-10 en þá gáfu okkar menn í, gerðu það sem þurfti og juku munninn aftur og var hann fjögur til sex mörk það sem eftir var og höfðu Haukarnir góð tök á leiknum og sigurinn í raun aldrei í hættu. Sóknin gekk og vörnin var fín og bak við hana var Birkir Ívar sem varði eins og berserkur. Ágætis stemming var í húsinu og vel mætt af áhorfendum beggja liða sem tóku þátt í leiknum af líf og sál og er þetta góð vísbending um það sem koma skal. Staðan er 1-0 fyrir okkur og skemmtunin rétt að byrja. Við mætum auðvitað öll upp í Breiðholt á fimmtudag og gefum ÍRingum ekkert eftir á pöllunum.