Haukakrakkar í undanúrslitum: Í beinni á netinu

HaukarTvö Haukalið eru í eldlínunni um helgina á úrslitahelgi yngri flokka í körfubolta. Að þessu sinni er leikið í Njarðvík og spila stelpurnar í 9. flokki og strákarnir í 10. flokki til undanúrslita.

Stelpurnar mæta Tindastóli kl. 9.00 í fyrramálið og strákarnir mæta heimamönnum í Njarðvík kl. 13.30.

Allir leikir helgarinnar eru í beinni útsendingu á netinu en slóðina má málgast hér.

Vonandi komast sem flestir að hvetja krakkana okkar áfram um helgina.

Áfram Haukar!